Frelsið er yndislegt.. ég geri það sem ég vil ;)

21.01.2012 08:30:16 / ksvava

BlogCentral.is lokar

Nú hefur vefurinn ákveðið að loka bloggsíðunum hérna sökum þess að umferð hefur minnkað töluvert eftir að facebook kom til sögunnar.  Því verður þessari síðu lokað á næstu vikum en ég hef ákveðið að færa mig því um set og er hægt að finna nýtt blogg á þessari slóð:

ksvava.wordpress.com

Takk fyrir mig.

kv
Svava
_________________________________________________________

Nú þegar flestir nota miðla eins og Facebook.com, Twitter.com og Tumblr.com til þess að eiga samskipti við sína nánustu, þá hefur notkun á BlogCentral minnkað mikið síðustu mánuði. Því hefur verið ákveðið að taka ekki við fleiri nýskráningum og loka vefnum á næstu vikum.

Núverandi notendur munu þó fá ráðarúm til þess að koma sér upp bloggi á blogg.Visir.is og geta óskað eftir aðstoð við að ná texta og myndum út úr BlogCentral til þess að flytja með sér.

Virðingarfyllst,
Vefstjóri BlogCentral 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2012 10:53:27 / ksvava

Svefnleysi..



Ég sef sko ekki nærri eins vel og hann Garfield á þessari mynd.  Ég skil ekki hvað er í gangi.  Ég hefði kannski skilið það ef ég væri að koma úr jólastússinu og búin að snúa sólahringnum við en ég vann öll jólin, þurfti að fara á fætur og gat ekkert leyft mér að vaka frameftir eða snúa sólahringnum við.  Eina og eina nótt næ ég góðum svefn en svo byrjar þetta aftur.  Eins og í nótt.. ég bylti mér eins oft og ég gat, horfði á stjörnurnar mína, fór fram, starði út um gluggann.. reyndi að lesa, horfa á þætti.. nothing!  Bara mjög vakandi!  Ég hafði ætlað mér að fara í body pump kl 6 en þegar klukkan var að verða fjögur og ég ekki enn sofnuð, þá vissi ég svo sem að ég væri ekkert á leið í ræktina.  Veit ekki hvenær mér tókst að ná mér í smá dúr en mikið svakalega er ég þreytt núna!  Vona að ég verði svona þreytt líka í kvöld.. þetta er ferlegt!

Annars gengur fermingarundirbúningurinn áfram vel.  Er komin með ljósmyndara í veisluna og nokkra þjóna :)  Fermingartertan er í hugmyndarvinnslu og það er fermingarstyttan líka en hún verður persónuleg og eiginlega bara eftirmynd af Talíu :)  Ég bíð enn eftir matartilboðum, annars er ég með þetta svona nokkuð niðurnjörfað :)

Fyrir utan svefnleysi, þá leikur lífið við mig þessa daga :)  Og já, ef þið vitið um einhvern sem vantar íbúð með húsgögnum frá maí og út nóvember.. endilega hafa samband við mig :)

Þreytt knús :*

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2012 00:05:07 / ksvava

Fermingarstúss



Þessi helgi var aðeins of fljót að líða enda byrjaði hún ekki fyrr en um ellefu leytið á föstudagskvöldinu.  Söngkeppni félagsmiðstöðvanna á Suðurlandi var haldin s.l. föstudag í Þorlákshöfn og var Talía dansari í atriðinu frá Þolló.  Því miður komust þær ekki áfram en flottar voru þær og var Talía líka í hópatriðinu í hlénu.  Já, þannig að þessi helgi byrjaði fremur seint og það voru mjög mjög þreyttar mæðgur sem komu í bæinn um kvöldið.. beint í rúmið og sváfum fram á hádegi á laugardeginum :/  Úúpps og æ æ ;)

Jæja allavega, laugardagurinn byrjaði á hlaupum en Talía var að fara í skírn hjá bestu vinkonu sinni og vorum við aðeins of seinar sökum útsofelsi.  Það var brunað í búðir að kaupa gjöf og síðan í miðbæinn þar sem ég keyrði hring eftir hring áður en mér tókst loks að finna og lenda á Þingholtsstræti hehe, já ég viðurkenni alveg að mér finnst hundleiðinlegt að keyra þarna í miðbænum og ég er bara ekkert klár í því.  Á meðan Talía skellti sér í skírn, ákvað ég að kíkja í fornbókabúðina á Hverfis.. en ég man ekki til þess að hafa farið þangað áður.  Þvílíkur draumur í dós.. ég væri eflaust ennþá þarna ef Talía hefði ekki hringt til að láta mig sækja sig.. tveimur tímum síðar!  Ég datt í svo mikinn einkaheim að það var æði en þaðan fór ég út með tvær Yrsu bækur, eina Stephen King bók, bók um Anne Boelyn og bók um Bollagarðaættina og þetta kostaði mig heilar 3 þús kr ;)  Þvílík kaup!

Jæja, þaðan lá leiðin í Karmel klaustrið í hafnafirði.  Vá hvað þetta er æðislega lítil og kósý búð þarna hjá þeim og þær eru svo yndislegar þessar nunnur.  Við Talía þjáumst af valkvíða dauðans en þetta var samt eitthvað svo auðvelt.  Við keyptum sálmabók með áletri og myndskreytingu að innan ásamt skrautskrifuðu gullkorni frá mér til Talíu :)  Svo keyptum við gestabók með áletri og myndskreytingu að innan og skrautskrift.  Að lokum var það auðvitað kertið en það er ekkert ósvipað og þið sjáið hérna á myndinni.. þó ekki alveg eins en Talía valdi allt sjálf í kertið :)  Við vorum einstaklega ánægðar með kaupin þarna og fórum skælbrosandi út :)

Svo skelltum við okkur í Elko þar sem fermingargjöfin var keypt en það var fyrir löngu ákveðið að ég myndi gefa henni fartölvu og það stóðst.  Hafði ég ætlað mér að kaupa handa henni Toshiba, þar sem ég á eina slíka og hefur hún reynst mér rosalega vel en eftir mikið umtal og útskýringar og daður og spjall, þá sannfærði sæti Elko gaurinn mig um að Acer tölvan væri betri og hentaði betur, þannig að ég smellti mér á hana enda vona ég að hann viti meira um þetta en ég og ég lét líka bleika tölvutösku fylgja með en já, það er þemað í fermingunni :)

Í dag var síðan lesið undir próf og slappað aðeins af en síðan var Smáralindin heimsótt og þar eyddum við öllum deginum í að skoða og máta kjóla.. samt Talía en ekki ég ;)  Það voru mátaðir að meðaltali 4 kjólar í hverri búð og fæturnir urðu sárari og sárari með hverju skrefi.  Klukkustund fyrir lokun var svo ákveðið að kaupa einn kjól, mér og fótunum til mikillar gleði :D  Og ekki nóg með það heldur fundust skórnir líka ;)  Hvorutveggja var á útsölu, þannig að þetta voru einstaklega góð kaup og góður dagur :)  Við mæðgur enduðum svo daginn á að kíkja á Axlar-Björn.. það er snilldar leikrit og þeir eru svo flottir, maður situr bara og slefar.. jahh og blotnar.. bókstaflega, fórum frekar blautar út og var það eftir smá vatnssull í leikritinu en ekkert annað.. hvað voruð þið annars að spá???

Annars er ég dauð núna, best að koma sér í háttinn svo að maður vakni nú einhvern tímann á morgun.. have sweet dreams.. about me ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.01.2012 09:06:32 / ksvava

Allt að gerast...



Hlutirnir eiga það til að gerast alveg ótrúlega fljótt og áður en maður veit af er allt komið á fullt skrið.  Ég henti inn auglýsingu í gær um íbúðina mína en ég ætla að reyna að leigja hana út í sumar á meðan ég fer vestur.. það átti að vera svona fyrsta skref nema hvað að áður en dagurinn endaði, þá var ég sjálf komin með íbúð á Ísafirði :)  Litla sæta íbúð efst í bænum og mér leist ljómandi vel á leigusalann.. ég finn það á mér að þetta sumar á eftir að vera algjör snilld :)

Annars er frá því að segja að ég fór í mælingu nr 2 hjá 6yshape og eftir fyrstu vikuna missti ég 1,9 kg, sem er nú alveg slatta gott sko en var ekki alveg nógu gott til að sigra Berglindi í mælingu.. damn!  En ég hef verið að lyfta aðeins og flestir sem þekkja til, vita að þegar maður lyftir þá getur maður þyngst aðeins til að byrja með á meðan verið er að byggja upp vöðva.. ég hef engar áhyggur af þessu.. tek bara meiri brennslu fyrir næstu mælingu ;)  En mér tókst hinsvegar að sigra Tomma í fyrstu mælingu hehe, þannig að ég var ekki alveg ósátt við niðurstöðurnar :)

Annars er ég að farast í öllum vöðvum líkamans.. Fór í body pump á þri morgun og auðvitað fékk maður eitthvað af harðsperrur eftir það nema hvað að ég lenti í því í gærmorgun þegar ég ætlaði í ræktina að ég komst hvorki lönd né strönd þar sem tveir bílar voru fastir á planinu hjá mér.  Verandi hraust sveitastúlka, þá auðvitað skellti ég mér út til að aðstoða við að koma þeim af planinu.  Fyrsti bíllinn var pís of keik enda ekkert brjálæðislega þungfært á planinu og svo var ráðist í að losa bíl nr 2.  Það var hinsvegar töluvert meira mál og var það alveg óskiljanlegt hvað sá bíll bara bifaðist ekki, sama hvort ýtt var fram eða aftur!  Hann bara spólaði eins og hann ætti lífið að leysa greyið.  Eftir puð og móð og más, þá bankaði ég nú aðeins í bílstjóragluggann til að ath hvort að bílstjórinn (ljóshærð, Reykvísk dama) væri ekki á meðan vor... haldiði að prinsessan á bauninni (bílstjórinn) sitji ekki bara í hægindum með Einari á stýri og hinni á lyklaborði símans.. ungfrú dama var sem sagt að senda pabba sínum sms og var lítið að fylgjast með aðgerðum ókunnugra við að koma bílnum út af stæðinu!  Jæja, á meðan ég bað skvísuna vinsamlegast um að hafa báðar hendur á stýri til að hjálpa til þá rak ég augun í að handbremsan var í beinstífri stöðu.. jabb, ungfrú ljóska var með í handbremsu!  Þessi aðgerð átti sér aldrei viðurvistar von!  Á meðan var verið að reyna að ýta bílnum í allar áttir, sat þessi ungfrú í sms aðgerðum með bílinn í handbremsu!  Það sem toppaði daginn fyrir mig var að þegar ég bað ungfrúnna.. vinsamlegast um að taka úr handbremsu.. með jú reyndar frekar pirraðri röddu, þá svaraði hún "sorry, ég hef bara aldrei lært að losa bíl"!   Þarna var mér nánast allri lokið, ég vissi ekki hvort að ég ætti að telja upp á tíu, labba í burtu eða dundra aðeins í hausinn á henni!   Orðlaus og sár hneyksluð.. lagði ég leið mína enn á ný aftan við bílinn, þar sem við ýttu lauslega við honum og komum honum á ljúflegan hátt út af stæðinu!  Vonandi sé ég þessa dömu ekki aftur!

Harðsperrurnar hafa ekki látið sitja á sér og er ég sárkvalinn útum allt!  Það er ekkert grín að ýta bíl í handbremsu!  Miðað við fréttir gærdagsins um tryggingar björgunarsveitanna varðandi skemmdir á bílum sem þeir draga.. þá er ég að spá í að skella mér í nudd og dekur og senda prinsessunni á bauninni reikninginn fyrir því!

Eigið ljúfan dag.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2012 12:45:33 / ksvava

Næsta mæling...

Mæling nr 2 hjá lífstílshópnum er í kvöld.. sem betur fer er hún í Seljahverfinu og verður bíllinn skilinn eftir heima.. nenni ekki að festa hann til að komast á milli húsa. Verður gaman að sjá muninn frá því í síðustu viku og líka bara athuga hvort að það sé mikill munur á mælingum frá Sporthúsinu og þessari. Annars skellti ég mér í body pump kl 6 í morgun og þrátt fyrir brjálað veður, þá var færðin allt í lagi enda engin umferð. Um leið og ég reyndi að koma mér í vinnuna, þá fór þetta að verða aðeins flóknara, sérstaklega þar sem margir litlir bílar voru þvers og kurs um allann veginn :( En ég komst og er búin að sitja hérna og hef ekkert að gera þar sem það er búið að aflýsa flestum ferðum. Svo er bara að sjá hvort að maður komist heim aftur.. þá verður það beint upp á pall og klára Yrsu bókina... ekkert meira nice en að sitja þarna uppi, hlusta á Bong og rokið og lesa góða bók undir teppi :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2012 13:17:51 / ksvava

This is it...



Úff þá er það semi nektarsýningin ... mæling í sporthúsinu í kvöld, in my undies ;)  Þarf að finna til mitt fínasta púss, gera mig sæta og svona fyrir myndatöku :)  Annars er markmiðið að sigra keppnina en svona just in case that doesn´t happen.. þá væri ferlega gott að missa nokkur kg og cm og verða flottari.. 

Það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi.. sjá mynd af Rómeó ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2012 15:03:35 / ksvava

Spinning!!??!!??

HOLY MOTHER OF GOD!!!!

Fór í spinning tíma nr 2 í þessari viku og þessi tími var svona þrefalt erfiðari en sá síðasti.  Þetta er í annað sinn á ævinni sem ég fer í ræktina og orðið flökurt af áreynslu.  Fyrra skiptið var hjá Kojak og já, svo núna.  En þetta tók geðveikt vel á og ég finn töluverðan mun :)  Svo er mæling á mánudaginn fyrir Biggest looser keppnina.. það eru nokkrir ferlega smeykir við að taka þátt af því að það verða teknar myndir á nærfötum eða bikinum.. ég ætla nú bara að hafa gaman af þessu og vera í einhverju flottu, sexy eða fríkuðu hehe.. spurning að fá fílanæríurnar lánaðar hjá Tomma ;)

Svo er mæling nr 2 á þriðjudaginn hjá lífstílsklúbbnum.. verður gaman að sjá samanburðinn við síðustu viku og líka bara við mælingar í sporthúsinu..  Var að spá í að vera voðalega góð og fara í 90 mínútna spinning tíma á morgun en ég held að ég sé ekki svo klikkuð.. ekki strax en ætla í body pump á sunnudaginn :)

Svo skrifa ég undir samning á sunnudaginn fyrir sumarið.. svo spennandi og ég hlakka svo til að takast á við allt saman :)  Eigið annars góða helgi flotta fólk og skemmtið ykkur rólega í kvöld :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2012 16:11:54 / ksvava

Geðveiki?

Já, ég get eflaust tekið undir það að einhverskonar geðveiki hefur yfirtekið mig og er bara þakklát að vera ekki ein um það :)  Í næstu viku á að skella sér í sjósund og verð ég sko ekki kona einsömul.. það deila fleiri þessari geðveilu með mér ;) 

Annars er hafin leit að sætu koti handa mér fyrir vestan í sumar og fermingaundirbúningur :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2012 10:55:55 / ksvava

Góð markmið



Það er svo gott að setja sér markmið.. mín markmið eru að sigra alla í þessum keppnum sem ég er í og þeirra markmið er að sigra mig :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2012 01:18:44 / ksvava

Gleðilegt ár

Árið mitt byrjaði alveg yndislega.  Fór austur og var með fjölskyldunni á gamlársdag, við dressuðum okkur öll upp og foreldrarnir buðu okkur upp á flottar grímur til að setja punktinn yfir i-ið :)  Matarborðið var skreytt í tilefni áramóta og allir í góðu stuði :)  Við pabbi kíktum á brennuna í Þorló með Einar yngri og svo fór öll fjölskyldan saman að gömlum sið og horfðum á flugeldana hjá Litla Hrauni.. það eru hreinlega bestu flugeldasýningar sem ég hef séð :)  Svo var spilað og spjallað þar til tími var kominn til að sprengja árið í burtu.  Við Talía keyptum okkur nú alveg slatta af sprengjum þetta árið og auðvitað pabbi líka.. flugelda magnið í Básahrauninu var ekkert minna en árin á undan og er æðislegt að sjá allt loga í kringum mann.  Eftir miðnætti sátum við foreldrarnir saman við eldhúsborðið, spjölluðum og skáluðum aðeins fyrir nýju ári.


Fjölskyldan mín

Mikið var yndislegt að vakna óþunnur á nýju ári :D  Um leið og allir voru búnir að nudda stírurnar úr augunum þá var spilað fram eftir degi og síðan borðaður glæsilegur matur.  Því miður þarf allt að taka enda og um kvöldið var haldið til Rvk á ný.  Mikið voru kisulingarnir mínir glaðir að sjá mig en þeir eru alveg hættir að spá í þessum sprengjum þarna úti.  Hefði svo viljað vera lengur í Höfninni en ný vinnuvika er hafin og því um að gera að koma sér aftur í rútínu.


Fallegi jólastrákurinn minn

Annars hef ég skráð mig í tvö námskeið/átök/keppni núna á næstunni.  Á morgun byrja ég í lífstílsnámskeiði og það verður svo fullt af skemmtilegu fólki með mér, allir að peppa hvern annan upp og stuðið er mikið :D  Get ekki beðið eftir að rústa þessu liði ;)  Svo ákvað ég að taka líka þátt í Biggest Looser hjá Sporthúsinu en það byrjar næsta mánudag.. alveg eins gott að keyra þetta allt í gang, fyrst að maður er að byrja á þessu á annað borð :) 

Er líka búin að pakka jólunum niður, því nú verður allur fókus á líkamsrækt.  Það er komið jafnvægi á allt í lífi mínu og nú skal ráðist á líkamsræktina og þá verður þetta 100%.

Árið byrjar vel og ég get ekki beðið eftir að hitta alla sem ég ætla að hitta á næstunni og takast á við líkamsræktina, fermingarundirbúning og margt, margt fleira :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2011 10:05:49 / ksvava

Áramóta annáll

Þetta ár hefur verið alveg yndislegt.  Margir sigrar og margar nýjungar en að mestu dramalaust ár og ég elska það :D  Hef kynnst fullt af nýju fólki og endurnýjað kynni við marga gamla vini.  Árið 2011 hefur svo sannarlega verið árið mitt og ég veit að árið 2012 mun toppa það og ég get ekki beðið :)



Þyrluferð yfir Reykjavík

Janúar: Fór í þyrluferð í fyrsta sinn, fór á fyrsta blind date-ið, skellti mér í hestaferð með Talíu og prófaði regnboganudd sem stækkaði mig um einn cm ;)


Bleika peysan á Blómstrandi Dögum

Febrúar: Fór aftur á Faust hjá Vesturport, var stolt mamma þegar Talía sigraði upplestrarkeppnina í Þorlákshöfn :) Fékk bleikustu lopapeysuna mína :D


Rómeó & Ísold

Mars: Skipti um dekk á jeppa í fyrsta sinn (í klikkuðu frosti upp á Holtavörðuheiði), litlu loðboltarnir mínir urðu fimm ára :) Horfði á Talíu í upplestrarkeppni fyrir suðurland (lenti í 4.sæti) :)


Bjargsig

Apríl: Fór í 6 klst fjallgöngu yfir dalinn á Hólum, fór í Grettislaug og í fyrsta sinn í flottu sundlaugina á Hofsósi, fór í 10 m hátt bjargsig :), fór í Hvalaskoðun með Eldingu, hélt fyrstu "dóta" kynninguna mína :) Fór upp á Langjökul í hellaskoðun :)


Stellan að máta hjólið mitt :)

Maí: Eignaðist bílinn minn og keypti mér mótorhjól :D Tók erfiða ákvörðun varðandi BA ritgerðina. Fór á "Nei Ráðherra" með fjölskyldunni :)


Rauða hverfið á Hafnardögum

Júní: Hélt afmælisveislu í Bláa Lóninu ;) Tók þátt í Kvennahlaupinu með Talíu minni, hljóp í Miðnæturhlaupinu með Stellu minni, fór í road trip með Talíu norður á Hóla, skemmti mér vel á Hafnardögum í rauða hverfinu, skellti mér á Cindy Lauper með Svönu í Hörpu :D Tók fyrsta laugavegsrúntinn minn ;)


Þjóðhátíð með Stellu og Biddu

Júlí: Fór á Hárið í Hörpu með Biddu, Agnesi og Hjöddu, eignaðist þurrkara :D Fór loksins um borð í skemmtiferðaskip ;) Fór í brúðkaup hjá Ella frænda, eignaðist hlaupaúr og skellti mér á Þjóðhátíð í afmælisveislu til Stellu :D Litla barnið mitt varð táningur :)


Viðeyjarsundið

Ágúst: Tók þátt í Rvk maraþoninu (10 km) og safnaði 21 þús kr fyrir Kattholt :) Synti til Viðeyjar og aftur tilbaka frá Skarfabakka (1.8 km). Horfði á flugeldasýninguna á Menningarnótt úti á hafi með Ástu og Kjartani :) Kíkti á Blómstrandi daga, fór í Road Trip með Talíu að sjá flugeldasýningu á Jökulsárlóni :) Skellti mér aftur á Hárið í Hörpu með Talíu og Stellu :)


Árgangur 1978

September: Skilaði loksins BA ritgerð og varði hana :) Var í skemmtinefnd fyrir 10 ára Árgangamót í Þorlákshöfn sem var haldið í sept :) Fjárfesti í blandara og árskorti í Sporthúsið, fór í bíósund (The Never Ending Story) í Laugardalslauginni með Talíu, Stellu og Ingu :)

 
HM í Danaveldi

Október: ÚTSKRIFT - Útskrifuð með BA í ferðamálafræði :D, fór í Road trip með Talíu og Stellu til Akureyrar :) Gaf stærstu gjöf sem ég get gefið ;) Fór á gjörning hjá Vesturport með Talíu :) Skar út fyrsta graskerfið mitt :) Skellti mér til Danaveldis og Svíþjóðar með Stellu minni :D


Snjósleðaferð á Langjökli

Nóvember: Fór í sumarbústað með fjölskyldunni, fékk starfstilboð á Ísafjörð næsta sumar og tók því :D Skellti mér á hótel Hengil með góðu fólki :) Fór á snjósleða á Langjökli :) Fór á Todmobile tónleika í Hörpu með Talíu og líka á Galdrakarlinn í Oz í Borgaleikhúsinu :) Útgefið dagatal til styrktar Kattholti með mynd af loðboltunum mínum :)



Desember: Fór á Baggalútstónleika og Frostrósartónleika með Talíu minni :) Jólahlaðborð á Hótel Sögu með Stellu og Talíu :) Skellti mér í helgarferð til Vestmannaeyja til Þjóðverjans ;) Hélt árlega jólaboðið fyrir vini og fjölskyldu :) Hélt auðvitað jól með fjölskyldunni í Þorló og áramót :)





Árið 2012 verður stórt ár og ég get ekki beðið eftir að takast á við það með ykkur flestum :)  Miklar breytingar framundan og ekkert nema gleði.

Eigið hin gleðilegustu og slysalaus áramót.. sjáumst 2012 :*

Nýárskveðja
Svava

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.12.2011 10:06:06 / ksvava

Næst síðasti dagur ársins runninn upp :)

Ég hef svona aðeins verið að dúlla mér við að setja upp annálinn og hef haft svo gaman af :)  Búin að kynnast fullt af nýju fólki og endurnýja kynni við fullt af gömlum vinum, skemmta mér gríðarlega, prófa nýja hluti, brosa meira, hlægja meira og njóta lífsins.. held að ég hafi sjaldan átt jafn dramalaust ár og það er sko ekki leiðinlegt :)

Annars er þessi vika búin að vera hin yndislegasta þrátt fyrir vinnu.  Talía búin að vera hjá mér og við höfum svona aðeins verið að bralla eitthvað.  Við skelltum okkur á spilakvöld til Agnesar, þar sem við mæðgur slógum auðvitað í gegn og fórum með sigurinn heim.. en ekki hvað? ;)  Áttum gott spjall, fengum fullt af góðu nammi og auðvitað jólaöl.  Kíktum líka í heimsókn til Svövu frænku og fengum nammi og jólaöl, smá spjall og smá gjöf handa Einari Jr.

Í gær lenti ég í ótrúlegastu snjóuppákomu ever.  Mjög saklaus og þreytt stúlka á leið í vinnu, opnaði bílskýlið og það blasti við mér snjóskafl sem náði mér upp að klofi.. jamm og já.  Þó svo að bíllinn minn sé hálfgerður jeppi, þá er hann ekki alveg svona stór jeppi ;)  Sem betur fer eru tvær hurðar á skýlinu og prófaði ég að tékka á hinni.  Þar hafði einn jeppi (bókstaflega jeppi) farið út og lagðist ég á spá og spekúleringar, hvort ég ætti að reyna slíkt hið sama!  Eftir miklar gaumgæfur, þá ákvað ég að signa mig og vona til guðs að það væri ekki að koma bíll úr hvorugri áttinni.. síðan bakkaði ég eins og ég gat og svo var bara brunað í óvissuna.. sem betur fer hafðist þetta og ég slapp við árekstra og að festa mig.. svo gat ég bara brunað í rólegheitum til vinnu :D

Auðvitað komst ég svo heim eftir vinnu og sem betur fer var búið að ryðja planið þannig að ég kom bílnum aftur inn í skýli.  Svo kom Stellan á fjallabíl og sótti okkur mæðgur til að skella okkur á Jólaball í Skautahöllinni með DeCode.  Við skelltum okkur konunglega.  Alltaf gaman að byrja að fara á skauta.. maður er eins og fáviti sem hefur aldrei verið með neitt á fótunum annað en skó :)  Talía svo mikil skautadrottning að hún var næstum farin að skauta á einari og stökkva í þrefalt heljarstökk áður en hún lenti... ;)  Við Stellan tókum þessu aðeins rólegra og fórum bara í tvöfalt stökk :D  Þarna skautuðum við hring eftir hring og vonuðum hið besta, þ.e.a.s. að drepa okkur ekki eða drepa aðra.  Svo komu jólasveinar og við fengum pizzur að éta... Talía var send skömmustulega til að ná sér í nammi poka til sveinka en svo sáu jólasveinarnir hvar sátu tvær yndisfríðar dömur (a.k.a. ég og Stella ;)  og komu til okkar og gáfu okkur líka nammi ;)  Þetta var meiriháttar og alltaf gaman að fara á skauta.. nema í dimmeteringu 2001 en þá var kíkt á slysó en það var víst gaman líka :D

Í dag er ég í fríi.. svaf út til níu og ætla að klára fyrstu Yrsu bókina í rólegheitum því að ég veit að unglingurinn fer ekki á fætur fyrr en um hádegi :)  Þetta verður eflaust rólegur dagur en síðan ætlum við að kíkja á flugeldasölu og svo er bíó date í kvöld.  Við Talía og Stellan ætlum að kíkja á New Year´s Eve.. góð skvísumynd svona í lok árs.  Ég býst svo sterklega við að það verði sofið út í fyrramálið og síðan "reynt" að bruna austur til að halda áramótin gleðileg.  Er enn að velta því fyrir mér hvort að maður eigi að fara á ball eða spila fram á nóttu með fjölskyldunni.. það verður síðasta ákvörðunin sem ég ætla að taka á þessu ári :D

Allavega, njóttið dagsins í dag.. það ætla ég sko að gera :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.12.2011 13:10:12 / ksvava

Yndislegur tími..

Þrátt fyrir að þurfa að mæta í vinnu á hverjum degi og hafa ekki fengið neitt jólafrí, þá hefur þetta verið æðislegur tími :)  Sérstaklega þegar Talía mín er hjá mér..  Í gær þá ákváðum við að hafa smá jól hjá okkur.  Elduðum okkur Bayonnes skinku með karamellugljáa, brúnuðum kartöflum og meðlæti og svo frómas í eftirrétt.  Gerði frumraun mína í frómas gerð og hún heppnaðist líka svona rosalega vel :)  Smakkaðist bara alveg eins og hjá pabba.. er sko ekki dóttir hans fyrir ekki neitt ;)

Svo sefur unglingurinn út á meðan mamman mætir í vinnu alla daga.  Rosalega líður tíminn hægt þegar manni langar að vera heima með gelgjunni sinni en ég held að hún sé voðalega fegin að fá smá hvíld frá öllu og bara vaka frameftir og sofa frameftir :)  Dagskráin hjá okkur er samt alveg stútfull fram að áramótum.  Ætlum að skella okkur á spilakvöld hjá Agnesi og Davíð í kvöld, ég held að fjölskyldu Alias verði á boðstólnum.. ekki verður það nú leiðinlegt ;)  Svo er búið að bjóða okkur á jólaball hjá DeCode annað kvöld og það fer fram í Egilshöll... Á SKAUTUM.. fæ enn og aftur að sýna snilldar takta á svellinu hehe gúlp ;)  Og svo ætlum við að fara í bíó í síðasta skipti á þessu ári á föstudaginn.  Ætlum að skella okkur nokkrar saman á New Years Eve.. hún verður örugglega æði :)

Svo brunum við austur á laugardag.  Sá dagur fer í fjölskyldu spil.. þessi fjölskylda mín fær víst ekki nóg af því að láta mig rústa sér í spilum múhahahaha :D  Svo auðvitað þetta týpíska, skjóta upp og skemmta sér í skúrnum hehe.  Spurning hvort að maður skelli sér á ball í Þorló eða hreinilega taki spilakvöld á þetta :)  Kemur í ljós :)

Hafið það gott :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.12.2011 13:11:27 / ksvava

Góðar stundir..

Það erfiðasta við þessi jól eru veðrið.. það er eitthvað svo dæmigert að þegar það koma loksins jól, þá ákveður veðrið að láta á sér kveða.  Ég komst þó með góðu móti austur á aðfangadag og heim aftur um nóttina en ákvað að geyma ferðina í gær og var því bara í rólegheitum með tvo snarbrjálaða ketti eftir vinnu :)  Þeir voru nú kannski ekkert snar brjálaðir svo sem en þeir fengu litlar mýs í jólagjöf og við það breyttust þeir í unglinga, jahh eða bara börn!  Ef annar kötturinn lék sér með mús, þá vildi auðvitað hinn kötturinn sömu músina því hún virtist skemmtilegri en sú sem sá köttur var með á þeirri stundu.. skiljiði? ;)  Það voru smá slagsmál og svona en ekkert alvarlegt :)

Annars átti ég æðisleg jól með fjölskyldunni.  Maturinn var dásamlegur, ég verð bara svöng af tilhugsuninni og auðvitað frómasinn.. ómissandi á jólunum.  Ég var nú ekki svo heppin að vinna möndlugjöfina þetta árið.. litla syss vann núna og sonur hennar í fyrra.. ég held svei mér þá að hún geti bara keypt möndlugjöfina fyrir næsta ár :)  Þetta kvöld einkenndist af miklum hlátri og gleði eins og alltaf.  Einar Junior fór á kostum með snilldar setningar og frábæra takta.  Best fannst okkur þegar hann náði sér í pakka undir trénu og brast í fagnaðaróp og gargaði.. disku, disku, disku  en þetta var jú mikið rétt hjá honum, dvd diskur og einmitt handa honum.  Góð röntgensjón hjá þessu barni :)  Auðvitað voru grallarapakkar, bæði af minni hálfu og að pabba hálfu og enduðu þessi gjafajól rúmlega miðnætti að þessu sinni :)

Ég var gífurlega ánægð með allt mitt og best fannst mé að sjá hvað allir voru sáttir við sitt, gladdi mitt litla hjarta að hafa fundið eitthvað sem foreldrar mínir áttu ekki og voru gífurlega ánægð með.  Litla dýrið mitt fékk auðvitað aragrúu af gjöfum en eina gjöfin sem gladdi barnið mest, hún bara nánast brast í grát og gelgju takta en það var fjórða serían af Big Bang Theory.  Hún var gífurlega ánægð með allar gjafir en þessi vék ekki frá henni eina sekúndu :)

Ég sjálf fékk fjórar bækur, ótrúlega ánægð með þessi bókajól.  Svo langt síðan ég hef upplifað bókajól enda ekki langað að lesa mikið með allar skólabækur hangandi yfir höfðinu á mér.  Allar bækurnar eru eftir Yrsu Sigurðardóttir og er ég auðvitað þegar búin með eina og byrjuð á annarri ;)  Svo fékk maður konfekt, lava lampa og ýmislegt fleira :)  Hefði kannski átt að biðja um kút í jólagjöf því að foreldrarnir gáfu mér smá til að aðstoða mig þegar ég stykki í djúpu laugina... ég vona að hún verði nú samt ekki of djúp :)

Nú skal haldið enn eina ferðina austur fyrir fjall og í þetta skipti á spilakvöld fjölskyldunnar.  Ætlum sko að spila fram á kvöld og hafa yndislega gaman.  Ég get ekki beðið enda fengum við Talía þrjú spil um þessi jól, tvö gefins og eitt mjög ódýrt :)  Bara yndislegt.  Annars er morgunvakt þessa vikuna og svo áramót í Þorló. 

En meira um það síðar, vona að þið hafið haft það gott um hátíðarnar og stórt knús á ykkur öll :*

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2011 08:03:51 / ksvava

Jólin eru komin :)



Þá er þessi langþráði dagur loksins runninn upp :)  Ég bíð spennt eins og lítil stelpa en þó aðallega til að sjá hvort að ég komist heim en veðrið er ekki upp á 10 fiska :(  Agnes og Stella eru samt búnar að bjóða mér að vera hjá þeim ef ég festist í bænum.. held samt að ég færi til Agnesar frekar þar sem Stellan ætlar bara að bjóða mér upp á pulsör eins og hún orðaði það :)  Búin að ferja fyrstu pakkana í bílinn en þetta er svo mikið sem ég fer með mér austur að ég á ekki til orð... á næsta ári verða sko bara keyptir litlir pakkar.. það er sko alveg alveg á hreinu!

Sit hérna í jólakósíheitum á Sögu með mína jólasveinahúfu og bíð eftir að klukkan slái 12.  Þá þarf ég að drífa mig heim, sjóða rækjur, ferja síðustu pakkana niður og krossa fingur að ég komist heil á höldnu alla leið.

Elsku vinir og ættingar
Mínar innilegustu óskir um gleðileg jól og farsældar á nýju ári.
Njótið hátíðarinnar með fjölskyldu og vinum
og hafið það sem allra best :)

Jólaknús
Ykkar ávallt
Svava


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 23084
Dagsetning
28. janúar 2012
Myndasöfn